Leitarvélin
Leitarvélin
Ertu eitthvað á ferðinni?
Er aðgengið í lagi?
Á leitarvélinni er hægt að sjá alla skráða staði á landinu.
Veljið stað eða þjónustu.
Finna skráða staði
Aðgengismerkjakerfið
"Gott aðgengi / Access Iceland” er upplýsinga- og þjónustuvefur sem byggir á 7 flokka merkjakerfi og skráningu á aðgengi að:
- mannvirkjum, innan- og utandyra
- náttúruperlum
- þjónustu
Smelltu á merkin til að sjá hvað þau þýða.
Hjólastólanotendur
Fólk sem notar hjólastóla hefur m.a. þörf fyrir:
- Jafnt og þétt undirlag án hæðarmunar
- Breiðar hurðir, sem létt er að opna
- Lyftur, til að komast á milli hæða
- Snyrtingar við hæfi
- Bílastæði nálægt aðalinngangi mannvirkja
Göngu- og handaskertir
Fólk með gönguskerðingu hefur m.a. þörf fyrir:
- Handlista við tröppur
- Marga hvíldarstaði
- Jafnt og slétt undirlag, án hæðarmunar
- Breiðar hurðir sem létt er að opna
- Bílastæði nálægt aðalinngangi
Blindir og sjónskertir
Fólk með sjónskerðingu hefur m.a. þörf fyrir:
- Enfalda og rökrétta uppbyggingu umhverfisins
- Skýrar leiðbeiningar og merkingar, áferðar- og litamun
- Handlista við tröppur og skábrautir
- Góða lýsingu sem blindar ekki,
- Að upplýsingar séu með hljóði og upphleyptum merkjum
Heyrnarskertir
Fólk með heyrnarskerðingu hefur m.a. þörf fyrir:
- Góða og sýnilega kynningar- og leiðarvísa
- Góð birtuskil og áherslulýsingu
- Að allar upplýsingar á talmáli séu einnig sýnilegar
- Góða hljóðeinangrun og dempun á umhverfishljóðum
- Tónmöskvakerfi
Astmi og ofnæmi
Fólk með astma og ofnæmi hefur m.a. þörf fyrir:
- Hentugt val byggingarefna
- Skilvirka útloftun og góða loftræsingu
- Ítarlegar hreingerningar og hreinlæti
- Góðar og ýtarlegar upplýsingar um ofnæmisvaka í umhverfinu
Þroskahömlun
Fólk með þroskahömlun hefur m.a. þörf fyrir:
- Efnis- og litaval sem auðveldar umgengni
- Einföld og auðlesin skilti með myndum og upphleyptum táknum
- Auðlesinn texta
- Beinar upplýsingar; maður á mann eða upplestur
Lestrarörðugleikar
Fólk með lestrarörðugleika hefur m.a. þörf fyrir:
- Að textaðar upplýsingar fáist einnig á hljóðskrám, í heyrnartækjum (audioguides) eða á geisladiskum
- Auðlesinn texta
- Að heyra fyrirmæli og upplýsingar eða sjá myndir af þeim, auk texta
Lesa meira...
Þarftu að halda fund, taka þátt í ráðstefnu eða skipuleggja ferðalag með fjölskyldunni? Athugaðu aðgengi hér á síðunni og veldu stað sem hentar þér.