Astmi og ofnæmi
Ofnæmi eru viðbrögð við efnum í umhverfinu. Ef einstaklingur með ofnæmi kemst í snertingu við
ofnæmisvaka koma fram mælanleg og/eða sýnileg viðbrögð í ofnæmiskerfi hans.
Astma- og ofnæmisvakar eru efni sem eru flestum skaðlaus en valda fólki með ofnæmi ýmiskonar einkennum.
Ofnæmisvakar geta verið frjó, dýr, rykmaurar, nikkel, ilmefni, tóbaksreykur og matvara.
Dýraofnæmisvakar eru einkum í byggingum þar sem dýr búa eða eru tíðir gestir. Rykmaurar finnast helst
í svefnherbergjum, þó ekki í teljandi magni á Íslandi.
Þeir sem eru með ofnæmi verða oft fyrir hömlun í daglegu lífi.
Fyrir þá sem eru mjög viðkvæmir getur til dæmis verið erfitt að nota almenningssamgöngur og gista á
hótelum.
Lítið magn ofnæmisvaka getur valdið því að ofnæmi brjótist út. Í sumum tilvikum
geta ofnæmisviðbrögð verið lífshættuleg. Því er nauðsynlegt að þeir sem
þjást af astma og ofnæmi hafi aðgang að greinargóðum upplýsingum um
staðhætti og ofnæmisvaka í umhverfinu.
Fólk með astma og ofnæmi þurfa:
-
byggingarefni við hæfi,
-
skilvirka útloftun, góða loftræsingu, vönduð þrif og að fyllsta hreinlætis sé gætt í hvívetna,
-
reglubundna umhirðu og hreinsun á útloftunar- og loftræsikerfum sem og loftkælingar- og hitakerfum,
-
góðar og ítarlegar upplýsingar um mögulega ofnæmisvaka í umhverfinu, þar með talið matvöru.